Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. mars 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. mars 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta verslunarrými 0103 í gistihúsnæði á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 15 við Skipholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2014..