Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. ágúst 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. ágúst 2014 þar sem spurt er um leyfi til að innrétta gistiheimili í atvinnuhúsnæðinu á jarðhæð hússins á lóð nr. 2 C við Starmýri. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2014.