Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
PKdM Arkitekta ehf.
dags. 18. júlí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Safamýri/Álftamýri vegna lóðar nr. 2 við Starmýri. Í breytingunni felst að hækka hús nr. 2a um tvær hæðir frá núverandi ástandi og bæta við byggingarreit til vesturs fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi sem snýr að Álftamýri. Breytingin gerir ráð fyrir að á lóðinni verði heimild fyrir íbúðir, verslunar- og þjónustustarfsemi og aðra atvinnustarfsemi sem samræmast notkunarskilgreiningum í Aðalskipulagi Reykjavíkur. Auk þess er gert ráð fyrir breytingum á lóð og nýjum bílastæðaskilmálum í samræmi við áherslur Aðalskipulags, samkvæmt uppdr.
PKdM Arkitekta ehf.
dags. 12. september 2019, br. 13. nóvember 2019. Einnig eru lagðir skýringar- og skuggavarpsuppdr. dags. 12. september 2019. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: 11 íbúar að Álftamýri 61, 63, 65, 67, 69, 71, 73 og 75 dags. 27. janúar 2020, Ragnheiður Bragadóttir f.h. íbúa í Starmýri 6 dags. 29. janúar 2020, Erla Hafrún Guðjónsdóttir dags. 29. janúar 2020 og Guðmundur B. Ólafsson f.h. eiganda og íbúa Starmýri 4 og 8 dags. 29. janúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2020 og er nú lagt fram að nýju ásamt skuggavarpsuppdr.
PKdM Arkitekta ehf.
dags. 18. febrúar 2020.