Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. apríl 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir á fyrstu hæð húss nr. 2C á lóðinni nr. 2 við Starmýri. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. maí 2013.