Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. ágúst 2016 var lögð fram fyrirspurn Páls Ólafs Eggerz, mótt. 25. júlí 2016, um að setja kvist á norðvestur horn hússins á lóð nr. 65 við Laugaveg og stækka glugga á þaki. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. ágúst 2016.