Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2013 var lagt fram bréf Framkvæmdasýslu ríkisins f.h. mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 7. janúar 2013 varðandi notkun hluta óbyggðar lóðar vestan við Guðbrandsgötu og hluta Guðbrandsgötu fyrir aðstöðu á framkvæmdatíma á Húsi íslenskra fræða, samkvæmt uppdr. Almennu verkfræðistofunnar dags. 7. febrúar 2012.. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.