Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. apríl 2020 var lögð fram fyrirspurn Vigfúsar Halldórssonar dags. 10. febrúar 2020 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 54 við Hofsvallagötu sem felst í stækkun á núverandi veitingastað á lóð nr. 54 við Hofsvallagötu til að koma fyrir salernisaðstöðu fyrir viðskiptavini, samkvæmt uppdr. Vigfúsar Halldórssonar dags. 7. desember 2019, en í dag er einungis salernisaðstaða fyrir starfsfólk. Einnig er lagður fram tölvupóstur Vigfúsar Halldórssonar dags. 11. febrúar 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.