Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 14. janúar 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. janúar 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúra á milli húsa 9 og 11 sem yrðu í samræmi við 7 st. bílskúra sem standa milli húsa nr. 7 og 9 á lóð nr. 7 til 11 við Barðastaðir. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 14. janúar 2011.