Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. febrúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Kristjáns Hrafns Bergsveinssonar, mótt. 11. janúar 2017, varðandi breytingu og stækkun á kvistum hússins á lóð nr. 15B við Grundarstíg, samkvæmt uppdrætti Páls V. Bjarnasonar ódags. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 18. janúar 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. febrúar 2017.