Lögð fram fyrirspurn Haralds Ingvarssonar dags. 10. maí 2022 um gerð deiliskipulags fyrir lóð nr. 23 við Síðumúla sem felst í að heimilt verði að breyta efri hæðum hússins í íbúðir, aðlaga lóð að íbúðarhúsnæði hvað varðar leiksvæði fyrir börn, gróður, hjólageymslur og sorp og bæta við aukahæð á álmur sem snúa að Selmúla og Síðumúla ásamt svölum að Síðumúla og inngarði, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 10. maí 2022. Einnig er lagður fram skýringaruppdr. dags. 2. maí 2022.