Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. janúar 2019 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á 3. hæð og til að staðsetja flóttastiga á bakhlið húss á lóð nr. 23 við Síðumúla.
Samþykki eins meðeigenda dags. 7. janúar 2019 fylgir erindi. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019.
Gjald kr. 11.200