Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta íbúð á 2. hæð í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 13 við Grensásveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. júní 2017.
Gjald kr. 11.000