Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. júní 2017 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 12. júní 2017, þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis
Brimborgar ehf.
til reksturs ökutækjaleigu með gildistíma frá 18. júní 2012, sem starfrækt er að Bíldshöfða 8. Forráðamaður er Egill Jóhannsson. Um að ræða útibú bílaleigunnar sem munu vera starfrækt að Bíldshöfða 5A. Sótt er um leyfi fyrir 2 ökutækjum í útleigu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2017.