Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Baldvins Árnasonar dags. 23. júní 2022 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Gufuness vegna lóðarinnar nr. 11 við Jöfursbás sem felst í fjölgun bílastæða. Einnig er lögð fram greinargerð Húsfélagsins að Jöfursbási 11 dags. 23. júní 2022 og bréf Húsfélagsins að Jöfursbási 11 dags. 23. júní 2022. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. október 2022.