Lögð fram umsókn Fjöreflis ehf. dags. 2. júlí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gufuness. Í breytingunni felst afmörkun byggingareits fyrir móttökuhús, breyting á afmörkun afnotareits skemmtigarðs U51 og færsla aðkomuvegs og bílastæðum breytt og fækkað samkvæmt uppdrætti Landark ehf. dags. 30. júní 2014. Einnig er lagt fram bréf Landark ehf. dags. 30. júní 2014.