Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. júní 2018 var lögð fram breytt umsókn T.ark Arkitekta ehf. dags. 30. apríl 2018 ásamt bréfi dags. 12. apríl 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits, reitur 1.216, vegna húss nr. 8 á lóð nr. 10 við Guðrúnartún. Í breytingunni felst hækkun bakhúss um tvær hæðir, úr tveimur hæðum í fjórar, samkvæmt uppdr. T. ark Arkitekta ehf. dags. 16. apríl 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.