Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. september 2018 var lögð fram breytt umsókn T.ark Arkitekta ehf. dags. 30. apríl 2018 ásamt bréfi dags. 12. apríl 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits, reitur 1.216, vegna húss nr. 8 á lóð nr. 10 við Guðrúnartún. Í breytingunni felst hækkun bakhúss um tvær hæðir, úr tveimur hæðum í fjórar, samkvæmt uppdr. T. ark Arkitekta ehf. dags. 16. apríl 2018. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi skrifstofu sviðsstjóra dags. 6. janúar 2019.