Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. júní 2018 var lögð fram fyrirspurn
Ragúel ehf.
dags. 5. júní 2018 um uppbyggingu á lóð nr. 24 við Sóltún sem felst í að byggja fjögurra til fimm hæða hús með þremur til fimm íbúðum á hverri hæð og studio íbúðir á efstu hæð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júní 2018.