Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. febrúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. febrúar 2019 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir við sólstofu á bakhlið húss á lóð nr. 1 við Kárastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019.