Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. febrúar 2018 var lögð fram fyrirspurn Eiríks Jónssonar dags. 8. febrúar 2018 um að setja svalir á húsið á lóð nr. 1 við Kárastíg, samkvæmt skissu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2018.