Ný viðbygging - stúdentaíbúðir/hótel og samkomusalur
Háskóli Íslands, Hringbraut 29
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 644
11. ágúst, 2017
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Háskóla Íslands, mótt. 19. apríl 2017, um breytingu á deiliskipulagi deiliskipulags Háskóla Íslands vegna lóðarinnar nr. 29 við Hringbraut sem felst í viðbyggingu við Gamla Garð og nýbyggingu á lóð sunnan hans. Byggingarnar eru tvær, annars vegar viðbygging við suðvesturgafl Gamla garðs, og hins vegar L- laga nýbygging sem opnast að Gamla Garði, samkvæmt uppdr. Ydda arkitekta, dags. 19. apríl 2017. Einnig er lögð fram hljóðvistarskýrsla verkfræðistofunnar Eflu, dags. 22. maí 2017 og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 12. júní 2017.

Lagt fram bréf rektors Háskóla Íslands, dags. 7. júlí 2017 þar sem óskað er eftir að framlengja athugasemdafrestinn.
Svar

Samþykkt að framlengja athugsemdarfrest til 11. september 2017, sbr. bréf rektors Háskóla Íslands dags. 7. julí 2017.