Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. nóvember 2017 var lögð fram fyrirspurn Gísla Sæmundssonar f.h. Alexanders Huga Leifssonar mótt. 6. nóvember 2017 ásamt greinargerð dags. 20. október 2017 varðandi hækkun hússins á lóð nr. 7B við Holtsgötu, samkvæmt uppdr. arkteikn slf dags. 19. maí og 21. september 2017. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. júní 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2017.