Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arkís f.h. Egg fasteigna ehf., dags. 11. október 2016 um breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóða nr. 6-8 við Hestháls skv. uppdrætti Arkís , dags. 5. október 2016. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að komið er fyrir nýjum byggingareit norðan núverandi byggingar. Einnig lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 11. október 2016. Tillagan var auglýst frá 28. nóvember 2016 til og með 11. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.