Lagt fram bréf Samgöngustofu dags. 22. maí 2018 þar sem óskað er eftir umögn vegna útibús ökutækjaleigu vegna leyfis
BL ehf.
til reksturs ökutækjaleigu með gildistíma 8. mars 2017, sem starfrækt er á Sævarhöfða 2. Um er að ræða útibú ökutækjaleigunnar sem óskað er að verði starfrækt að Hesthálsi 6-8. 10 ökutæki verða með fasta stöð á þessum stað til útleigu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2018.