Lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar dags. 22. janúar 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssvið á umsókn
Sóleyjar Minerals ehf.
um lengri veitingatíma áfengisleyfis fyrir veitingastaðinn Skúla Craft Bar að Aðalstræti 9. Sótt er um lengingu veitingatímans frá kl. 23:00 virka daga til kl. 01:00 og frá kl. 01:00 um helgar eða almenns frídags til kl. 03:00.