Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús, einangrað að utan og klætt málmklæðningu með 8 íbúðum á lóð nr. 60 við Njálsgötu. Einnig er lagt fram bréf Egils Sæbjörnssonar dags. 27. apríl 2021. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags.11. september 2020. Erindi fylgir yfirlit breytinga. Stærð, mhl. 01, A-rými: 595,8 ferm., 1.701,1 rúmm. B-rými: 27,8 ferm. Samtals: 623,6 ferm. Geymsla sem fyrir er á lóð, mhl. 03: 16,8 ferm., 59,4 rúmm. Samtals, mhl. 01 og mhl. 03: 640,4 ferm. Gjald kr. 12.100