Lögð fram umsókn
Arkís arkitekta ehf.
dags. 5. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reitur 1.190.3, vegna lóðarinnar nr. 60 við Njálsgötu. Í breytingunni felst að skilmálatafla er uppfærð, húsheiti Njálsgata 60 og Njálsgata 60A eru sameinuð undir heitinu Njálsgata 60 og byggingareit breytt þannig að hann bjóði upp á betri nýtingu byggingar og garðrýmis, samkvæmt uppdr.
Arkís arkitekta ehf.
dags 30. október 2018. Einnig eru lagðir fram skýringaruppdrættir dags. 16. október 2018.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.