Lögð fram fyrirspurn leiguþjónustunnar ehf., mótt. 29. mars 2019, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 60 við Njálsgötu sem felst í að rífa niður húsin á lóðinni, en halda skúrnum á bakhluta lóðarinnar og nýta hann sem sorpgeymslu, og byggja fjölbýlishús með 11 litlum íbúðum, samkvæmt uppdr. Arkitektaþjónustu Austurlands, dags. í mars 2017. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir Arkitektastofu Austurlands, dags. í desember 2016, minnisblað verkþjónustu Hjalta slf., dags. 22. febrúar 2017, greinargerð arkitekts, dags. 28. mars 2017 og bréf Minjastofnunar Íslands, dags. 15. mars 2017.