Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta núverandi auglýsingaskilti (2,5 x 7,0 m) í LED skilti við hús nr. 1-3 á lóð nr. 1-5 við Hverafold. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2021.
Gjald kr. 11.200