Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2017 var lögð fram fyrirspurn Kristins Ragnarssonar, mótt. 17. ágúst 2017, varðandi aukningu á byggingarmagni lóðarinnar sem felst í að hækka húsið um inndregna 4. hæð og setja svalir og svalaganga, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts, dags. 4. október 2017. Einnig er lagt fram skuggavarp Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 4. október 2017 og tillaga sem sýnir fyrirkomulag íbúða dags. 9. maí 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2017.