Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. september 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048091 þannig að settar eru svalir út frá svalaskýli 0202 á austurhlið hússins á lóð nr. 15 A við Þingholtsstræti. Erindi var grenndarkynnt frá 20. september 2017 til og með 18. október 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðfinna Hinriksdóttir og Árni Geir Magnússon dags. 17. október 2017. Gjald kr. 11.000