Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 16. nóvember 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. nóvember 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta úr flokki I í flokk III veitingahúsi nr. 6-10A við Vesturgötu á lóðinni Vesturgötu 6-10A/Tryggvagötu 18. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 21.nóvember 2012.