Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2022 var lögð fram fyrirspurn Sögu Magnúsdóttur dags. 24. mars 2022 um að setja kvisti á húsið á lóð nr. 90 við Miðtún, samkvæmt tillögu ódags. ásamt því að gera íbúð í risi hússins. Einnig er lögð fram álitsgerð/bréf byggingarfulltrúa dags. 5. febrúar 2004. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. apríl 2022.