(fsp) losun jarðvegsefnis úr lóðum nýbygginga
Hólmsheiði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 766
20. mars, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð er fram að nýju tillaga Umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir hesthúsabyggð á Hólmsheiði vegna tilfærslu á Rauðavatnslínu 1 sem liggur innan skipulagsmarka hesthúsabyggðarinnar vegna 1. áfanga Korpulínu jarðstreng. Breytingin er tilkomin vegna breytinga á núverandi Rauðavatnslínu milli tengivirkjanna á Geithálsi og tengivirkis A12 sem liggur nú í loftlínu milli reiðstígs og vatnslögn vestast á skipulagssvæðinu. Lagður verður nýr 132 kv jarðstrengur í stað núverandi loftlínu sem verður fjarlægð eftir spennusetningu strengsins, samkvæmt uppdr. VSÓ ráðgjafar dags. 16. desember 2019. Tillagan var auglýst frá 30. janúar 2020 til og með 12. mars 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 12. mars 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.