Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Hestamannafélagsins Fáks dags. 22. september varðandi breytingu á deiliskipulagi Hesthúsabyggðar á Hólmsheiði. Í breytingunni felst annars vegar breytingar á framtíðaráætlunum á svæðinu og hins vegar samræming skipulagsins að núverandi stöðu. Um er að ræða breytingar í þrettán liðum, auk fimm lagfæringa á uppdrætti til samræmis við núverandi stöðu, samkvæmt uppdr. Landslags. dags. 16. október 2021. Tillagan var auglýst frá 1. desember 2021 til og með 12. janúar 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Sveinbjörn Guðjohnsen f.h. stjórnar Fjáreigendafélags Íslands dags. 11. janúar 2022, Ólafur R. Dýrmundsson Ph.D. dags. 11. janúar 2022 og Bjarni Jónsson dags. 12. janúar 2022. Erindinu var vísað til umsagnar á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. janúar 2022 og er nú lagt fram að nýju.