Lögð fram umsókn Hringrásar hf. dags. 15. október 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 7 Klettagarða. Í breytingunni felst að byggingarreytur er stækkaður til vesturs og stofnuð er ný lóð, Klettagarðar 7A, fyrir dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur, samkvæmt uppdr. Klöpp arkitektar/verkfræðingar ehf. dags. í október 2013.