Lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 5. nóvember 2018 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á tillögu að starfsleyfi fyrir Hringrás sem komin er í auglýsingu. Tillagan nær til móttöku á brotamálmi, bifreiða og vélaverkstæðis, móttökustöðvar fyrir ökutæki til förgunar og flutnings spilliefna. Óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa einkum um hvað varðar gildistíma leyfis.