Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar, dags. 6. júlí 2015, þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs um tillögu að starfsleyfi fyrir
Efnarás ehf.
fyrir meðhöndlun spilliefna og raf- og rafeindatækjaúrgangs að Klettagörðum 7. Einnig er lögð fram umsögn Faxaflóahafna sf., dags. 27. ágúst 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. september 2015.