Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013. Gjald kr. 9.000