Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á einni hæð til norðurs með svölum á þaki, innrétta íbúð á jarðhæð og byggja svalir á 3. hæð götuhliðar íbúðarhúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 17. ágúst 2011 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 22. ágúst 2011. Stækkun: 32,2 ferm., 81,5 rúmm. Gjald kr. 8.000 + 6.520
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Þingholtsstræti 17 og Ingólfsstræti 18.