Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi PK-Arkitekta ehf. dags. 7. mars 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits 1, 1.190.0, vegna lóðarinnar nr. 33B við Njálsgötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit samkvæmt uppdr. PK-Arkitekta ehf. dags. 7. mars 2013. Tillagan var grenndarkynnt frá 29. apríl til og með 29. maí 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðný Sveinbjörnsdóttir dags. 6. maí 2013, Hörður Torfasonar f.h. húsfélagsins Njálsgötu 35 dags. 7. maí 213, Ásta Stefánsdóttir dags. 17. maí 2013 og íbúar Grettisgötu 34 dags. 25. maí 2013.