Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Suður Mjóddar er varðar lóðina Álfabakka 4 sem felst í að skipta henni í tvær lóðir sem fengu þá heitin Álfabakki 4 og 6, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð, dags. 5. nóvember 2020. Breytingin er tilkomin vegna vilyrðis um lóðarúthlutun fyrir starfsemi Garðheima í Breiðholti sbr. samþykki Borgarráðs í júní 2020. Einnig er lögð fram umsögn samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 16. október 2020. Tillagan var auglýst frá 2. desember 2020 til og með 18. janúar 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. Veitur dags. 21. janúar 2021.