Lögð er fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Suður Mjóddar er varðar lóðina Álfabakka 4 sem felst í að skipta henni í tvær lóðir sem fengu þá heitin Álfabakki 4 og 6, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð, dags. 25. september 2020. Breytingin er tilkomin vegna vilyrðis um lóðarúthlutun fyrir starfsemi Garðheima í Breiðholti sbr. samþykki Borgarráðs í júní 2020.