Lögð fram umsókn SEA vegna lóðar ÍR, íþróttafélags, dags. 29. júní 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suður-Mjóddar. Í breytingunni felast breytingar á íþróttasvæði ÍR, breytingar á lóðum við Árskóga 1-7, breytingar á lóð Álfabakka 2, lagnakvöðum á öllu svæðinu o.fl. Einnig er gert ráð fyrir nýrri verslunar- og þjónustulóð á norðvestur hluta svæðisins, samkv. uppdr. teiknistofunnar Storð dags. 4. apríl 2017.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.