Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júní 2019 var lögð fram fyrirspurn Guðrúnar R. Viðarsdóttur dags. 5. júní 2019 um að setja kvist á húsið á lóð nr. 3A við Bauganes, setja svalir ofan á geymslu með útgengi frá rishæð og tröppum niður í garð og að breyta fyrirhuguðum bílskúr í vinnustofu með salerni. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júní 2019.