Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn Silju Bjargar Halldórsdóttur dags. 9. apríl 2019 um uppbyggingu á lóð nr. 3A við Bauganes. Einnig er lagður fram tölvupóstur Silju Bjargar Halldórsdóttur dags. 8. maí 2019 varðandi nýja tillögu að uppbyggingu á lóð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2019.