Lögð fram umsókn
Arkís arkitekta ehf.
dags. 15. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Lyngháls. Í breytingunni felst að afmarkaður er byggingarreitur ofan á núverandi byggingu og hann verði hluti af heildarbyggingarmagni sem leyfilegt er að byggja á lóðinni og hámarksbyggingarmagn lóðar fari úr 1,0 í 1,1, samkvæmt uppdr.
Arkís arkitekta ehf.
dags. 15. apríl 2019.