Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Opus fasteigafélags ehf., mótt. 12. janúar 2016, um að gera nýja aðkomu/innkeyrslu á lóð nr. 13A við Skútuvog frá Kleppsmýrarvegi. Innkeyrslan yrði gerð við hliðina á nýlegri aðkomu/innkeyrslu að baklóð Brúarvogs 1-3 og tenging við gatnakerfið yrði sameiginleg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar Faxaflóahafna og Samgöngustjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn samgöngustjóra, dags. 25. febrúar 2016 og umsögn Faxaflóahafna, dags. 3. mars 2016. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. mars 2016.