Á fundi skipulagsfulltrúa 31. júlí 2015 var lögð fram fyrirspurn
Reir ehf.
, mótt. 27. júlí 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits sem felst í uppbyggingu á lóðunum nr. 27, 29 og 31 við Mýrargötu og 1A og 1B við Seljaveg, samkvæmt tillögu Plúsarkitekta ehf., dags. júlí 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.