Lögð fram umsókn Þingvangs ehf. dags. 30. apríl 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Brynjureits vegna lóðarinnar nr. 46 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að breytt er texta í 14. málsgrein í kaflanum "Sér ákvæði fyrir einstök hús" þannig að bætt er í textann að heimilt verður að vera með gistiaðstöðu á fyrstu hæð hússins við Hverfisgötu og atvinnustarfsemi og gistiaðstöðu á efri hæðum, samkvæmt tillögu Urban arkitekta ehf. dags. 22. apríl 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hverfisgötu 40, 40A, 40B, 42, 42A, 44, 44A, 44B og 50, Vatnsstíg 3, 3B og 5 og Laugavegi 27, 29 og 31.